Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 31. janúar 2023 17:44
Jóhann Þór Hólmgrímsson
„Sabitzer er byggður fyrir úrvalsdeildina"
Sabitzer í treyju Leipzig
Sabitzer í treyju Leipzig
Mynd: Getty Images

Hinn 28 ára gamli Marcel Sabitzer er á leið til Manchester United frá Bayern Munchen en hann á að leysa Christian Eriksen af hólmi sem er meiddur.


Enski fréttamaðurinn Andy Brassell er spenntur fyrir komu Sabitzer fyrir hönd Manchester United.

„Ef þú skoðar hvernig hann spilaði hjá Leipzig þá var hann einn af bestu miðjumönnum í heimi og hann hefði labbað inn í flest byrjunarliðin hjá topp sex liðunum í úrvalsdeildinni, hann var það góður. Hann virðist vera byggður fyrir úrvalsdeildina," sagði Brassell.

Sabitzer gekk til liðs við Bayern frá Leipzig árið 2021 og hefur leikið 54 leiki fyrir félagið og skorað tvö mörk.


Athugasemdir
banner
banner
banner