Fotbolti.net
31.03.23 - 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Subway

England um helgina - Risaslagur í Manchester

England um helgina - Risaslagur í Manchester
Canon

Mynd: EPA

Enski boltinn byrjar aftur að rúlla í hádeginu á morgun þegar Manchester City tekur á móti Liverpool í risaslag.

Fótboltaþyrstir unnendur ensku úrvalsdeildarinnar hafa beðið spenntir yfir landsleikjahléð því nú hefst lokahnykkur fótboltatímabilsins.

Man City þarf sigur gegn Liverpool til að brúa bilið á milli sín og toppliðs Arsenal, sem fær Leeds United í heimsókn á Emirates.

Chelsea tekur svo á móti Aston Villa í lokaleik laugardagsins, áður en Manchester United mætir til leiks á sunnudaginn.

Rauðu djöflarnir heimsækja Newcastle United í hörkuslag þar sem Newcastle er óvænt í baráttu um Meistaradeildarsæti. Leikurinn hefst skömmu eftir að viðureign West Ham og Southampton lýkur í fallbaráttunni.

Lokaleikur umferðarinnar fer svo fram á mánudagskvöldið, þar sem Richarlison heimsækir sína gömlu liðsfélaga þegar Tottenham kíkir á Goodison Park.

Laugardagur:
11:30 Man City - Liverpool
14:00 Nott. Forest - Wolves
14:00 Crystal Palace - Leicester
14:00 Brighton - Brentford
14:00 Bournemouth - Fulham
14:00 Arsenal - Leeds
16:30 Chelsea - Aston Villa

Sunnudagur:
13:00 West Ham - Southampton
15:30 Newcastle - Man Utd

Mánudagur:
19:00 Everton - Tottenham

England um helgina - Risaslagur í Manchester
Canon

Mynd: EPA

England um helgina - Risaslagur í Manchester
Canon

Mynd: EPA

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City8+1121
2Arsenal8+821
3Brighton8+1616
4Liverpool8+315
5Chelsea8+213
6Brentford8+511
7Leeds8+311
8Newcastle8-211
9Aston Villa8-311
10Hull City8+110
11Everton8-110
12Ipswich Town8-410
13Bournemouth8-19
14Tottenham8-29
15Fulham8-28
16Man Utd8-37
17Crystal Palace8-107
18Nott. Forest8-46
19Coventry8-96
20Sunderland8-85
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.