Fotbolti.net
31.05.20 - 20:22
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Championship-deildin byrjar 20. júní

Leeds er á toppi Championship-deildarinnar.

Leeds er á toppi Championship-deildarinnar.

Canon

Mynd: Getty Images

Championship-deildin, næst efsta deildin á Englandi, mun hefjast aftur þann 20. júní næstkomandi, rúmum þremur mánuðum eftir að hlé var gert á henni vegna kórónuveirufaraldursins.
Þessi dagsetning gæti breyst, en eins og staðan er núna þá mun Championship byrja aftur 20. júní.

Það eru 108 leikir eftir í deildinni, að auki umspilsins um síðasta sætið í ensku úrvalsdeildinni.

Bresk stjórnvöld staðfestu í gær að íþróttaviðburðir megi fara fram frá og með 1. júní, svo lengi sem fylgt sé ströngum reglum vegna Covid-19. Leikið verður fyrir luktum dyrum.

Vonast er til þess að hægt verði að klára Championship um 30. júlí. Leeds er eins og er á toppi deildarinnar með einu stigi meira en West Brom. Patrik Sigurður Gunnarsson er á mála hjá Brentford sem er í fjórða sæti og Jón Daði Böðvarsson og félagar í Milwall eru áttunda sæti, tveimur stigum frá umspilssæti.

Enska úrvalsdeildin á að hefjast á þjóðhátíðardegi okkar Íslendinga, þann 17. júní.

Championship - karlar

#LiðLmunStig
1Birmingham15+1429
2Middlesbrough15+1129
3Stoke City15+629
4Wolves15+828
5West Brom15+828
6Swansea15+426
7Southampton15+1424
8QPR15+624
9West Ham15+1423
10Sheffield Utd15+222
11Portsmouth15+222
12Norwich15+821
13Blackburn15-121
14Cardiff City15018
15Wrexham15-218
16Millwall15-418
17Bristol City15-818
18Bolton15-917
19Charlton Athletic15-1017
20Watford15-1015
21Lincoln City15-1115
22Burnley15-910
23Derby County15-1610
24Preston NE15-178
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.