Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 31. maí 2020 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Ísland í dag - Breiðablik mætir Val í beinni
Mynd: Eyþór Árnason
Það eru minnst þrír æfingaleikir á dagskrá í íslenska boltanum í dag og þar á meðal er stórleikur á Kópavogsvelli.

Breiðablik mætir þar Val klukkan 18:00 og verður sýnt beint frá leiknum á BlikarTV.

Útsendingin hefst hálftíma fyrir leik og verður útsendingin með breyttu sniði sem verður spennandi að fylgjast með fyrir þá sem ekki ná að mæta á leikinn á morgun.

Aðeins 400 miðar eru í boði á leikinn og mun allur ágóði renna til Píeta samtakanna sem hjálpa einstaklingum að berjast gegn þunglyndi.

KFR og Álafoss eigast einnig við í dag og leikið verður á Hvolsvelli. KÁ og ÍH mætast þá á Ásvöllum.

Við óskum eftir upplýsingum um alla æfingaleiki í gegnum tölvupóst á [email protected]

Leikir dagsins:
16:00 KFR - Álafoss (Hvolsvöllur)
17:00 KÁ - ÍH (Ásvellir)
18:00 Breiðablik - Valur (Kópavogsvöllur)


Athugasemdir
banner
banner
banner