Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 31. október 2019 20:30
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Bellerín bæði svekktur og stoltur eftir tapið í bikarnum
Hector Bellerín.
Hector Bellerín.
Mynd: Getty Images
Hector Bellerín lék allan leikinn í liði Arsenal í gær sem datt út úr deildabikarnum eftir magnaðan fótboltaleik. Lokatölur eftir venjulegan leiktíma 5-5 og því var farið beint í vítaspyrnukeppni til að skera úr um hvort liðið færi áfram, þar hafði Liverpool betur.

Arsenal var með forystuna stóran hluta leiksins og því voru blendnar tilfinningar hjá leikmönnum liðsins eftir að niðurstaðan var ljós.

„Ég er mjög svekktur með niðurstöðuna en á sama tíma er ég stoltur af liðinu. Frá upphafi leiks sýndum við að við værum komnir hingað til að reyna ná í sigurinn."

„Við óttumst ekki neitt lið, það er alveg sama hver andstæðingurinn er. Við getum bæði tekið jákvæða og neikvæða punkta út úr þessum leik en nú þarf að setja þennan leik til hliðar og fara hugsa um næsta verkefni," sagði Bellerín.

Arsenal fær Wolves í heimsókn á laugardaginn.
Athugasemdir
banner
banner
banner