5 mörk í 10 leikjum
Það er margt sem Quique Sanchez Flores knattspyrnustjóri Watford þarf að hafa áhyggjur af þessa dagana, liðið situr á botni deildarinnar með fimm stig eftir fimm jafntefli.
Þau eru mörg vandamálin hjá Watford og eitt þeirra er markaskorunin en þeir eru búnir að skora fimm mörk í tíu deildarleikjum. Í síðustu fimm leikjum í öllum keppnum hafa þeir einungis skorað eitt mark.
Fyrirliðinn Troy Deeney er einn helsti markaskorari liðsins en liðið getur ekki treyst á hans þjónustu þessar vikurnar þar sem hann er frá vegna meiðsla og er búinn að vera það frá því í ágúst, Sanchez Flores bindur vonir við það að Deeney snúi aftur eftir landsleikjahlé.
„Ég elska Deeney, allir vita það og allir vita hversu mikilvægur hann er fyrir liðið. En í augnablikinu getum við ekki hugsað of mikið um það þar sem hann er frá vegna meiðsla."
„Hann (Deeney) er mikill karakter og er með allt sem þarf fyrir þetta félag. Vel skipulagður, hugrakkur, ákveðinn og skilar alltaf sínu fyrir liðið. Þetta er karakter sem við þurfum á að halda," sagði Flores.
„Það sem við þurfum fyrst og fremst að hugsa um núna er að finna lausnir fram á við með þá Gerard Deulofeu, Andre Gray og Roberto Pereyra fremsta í flokki," sagði Flores sem er nú að undirbúa liðið fyrir leik gegn Chelsea á laugardaginn.
Stöðutaflan
England
Premier league - karlar
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | Arsenal | 33 | 23 | 5 | 5 | 77 | 26 | +51 | 74 |
2 | Liverpool | 33 | 22 | 8 | 3 | 75 | 32 | +43 | 74 |
3 | Man City | 32 | 22 | 7 | 3 | 76 | 32 | +44 | 73 |
4 | Aston Villa | 34 | 20 | 6 | 8 | 71 | 50 | +21 | 66 |
5 | Tottenham | 32 | 18 | 6 | 8 | 65 | 49 | +16 | 60 |
6 | Newcastle | 32 | 15 | 5 | 12 | 69 | 52 | +17 | 50 |
7 | Man Utd | 32 | 15 | 5 | 12 | 47 | 48 | -1 | 50 |
8 | West Ham | 34 | 13 | 9 | 12 | 54 | 63 | -9 | 48 |
9 | Chelsea | 31 | 13 | 8 | 10 | 61 | 52 | +9 | 47 |
10 | Brighton | 32 | 11 | 11 | 10 | 52 | 50 | +2 | 44 |
11 | Wolves | 33 | 12 | 7 | 14 | 46 | 53 | -7 | 43 |
12 | Fulham | 34 | 12 | 6 | 16 | 50 | 54 | -4 | 42 |
13 | Bournemouth | 33 | 11 | 9 | 13 | 48 | 60 | -12 | 42 |
14 | Crystal Palace | 33 | 9 | 9 | 15 | 42 | 56 | -14 | 36 |
15 | Brentford | 34 | 9 | 8 | 17 | 52 | 59 | -7 | 35 |
16 | Everton | 33 | 10 | 8 | 15 | 34 | 48 | -14 | 30 |
17 | Nott. Forest | 34 | 7 | 9 | 18 | 42 | 60 | -18 | 26 |
18 | Luton | 34 | 6 | 7 | 21 | 47 | 75 | -28 | 25 |
19 | Burnley | 34 | 5 | 8 | 21 | 37 | 69 | -32 | 23 |
20 | Sheffield Utd | 33 | 3 | 7 | 23 | 31 | 88 | -57 | 16 |
Athugasemdir