Breiðablik er úr leik í Meistaradeildinni eftir 3-1 tap gegn PSG í Frakklandi í kvöld, samanlagt 7-1.
Eftir 0-4 tap á Kópavogsvelli fyrr í mánuðinum var ljóst að um erfitt verkefni væri að ræða.
Breiðablik átti fínan leik í kvöld gegn sterku liði PSG, Berglind Björg Þorvalsdóttir skoraði mark Blika í leiknum.
Hér að neðan má sjá markið sem Berglind skoraði ásamt fyrsta marki leiksins sem Jordyn Huitema skoraði.
Hvað haldiði!!! @berglindbjorg10 skorar að sjálfsögðu sitt 10. mark í Meistaradeildinni! 1-1 í hálfleik! pic.twitter.com/gp8PmxDaDC
-- RÚV Íþróttir (@ruvithrottir) October 31, 2019
PSG er komið yfir á heimavelli. Kanadíska landsliðskonan Jordyn Huitema með markið á 6. mínútu. pic.twitter.com/LeWB9K2hv8
-- RÚV Íþróttir (@ruvithrottir) October 31, 2019
Athugasemdir