Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 31. október 2020 07:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Alisson: Tækling Pickford var óþarfi
Mynd: Getty Images
Virgil van Dijk varð fyrir hnémeiðslum í leik Liverpool og Everton fyrr í þessum mánuði. Jordan Pickford, markvörður Everton, óð út á móti van Dijk í teignum og straujaði hann með þeim afleiðingum að van Dijk gat ekki haldið leik áfram og hefur nú farið í aðgerð í kjölfarið. Hann verður frá í lengri tíma.

Alisson Becker, markvörður Liverpool, var spurður út í atvikið og sagði: „Allir markverðir spila leikinn á mismunandi hátt og hreyfa sig á mismunandi hátt," sagði Alisson við Sky Sports News.

„Á þessu augnabliki var þetta 100% ekki nauðsynleg hreyfing [hjá Pickford]."

„Kannski sjá aðrir þetta öðruvísi. Ég er ekki samþykkur þessari aðgerð hjá Pickford og allir vita það. Þetta var óþarfa augnablik og hreyfing."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner