Burton 1 - 2 Blackpool
0-1 Jerry Yates ('21)
1-1 Daníel Leó Grétarsson ('63, sjálfsmark)
1-2 Jerry Yates ('75, víti)
0-1 Jerry Yates ('21)
1-1 Daníel Leó Grétarsson ('63, sjálfsmark)
1-2 Jerry Yates ('75, víti)
Daníel Leó Grétarsson spilaði sinn fyrsta leik með Blackpool er liðið heimsótti Burton Albion í ensku C-deildinni í dag.
Jerry Yates var hetja Blackpool og gerði eina markið í fyrri hálfleik. Daníel Leó átti flottan leik í hjarta varnarinnar en varð fyrir því óláni að setja boltann í eigið net þegar hann fékk fyrirgjöf í sig í seinni hálfleik og staðan var þá orðin 1-1.
Það gerði þó lítið til þar sem Yates gerði sigurmark Blackpool úr vítaspyrnu á 75. mínútu.
Blackpool er komið með 10 stig eftir jafnmargar umferðir. Burton er með 6 stig.
Athugasemdir