Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 31. október 2020 15:15
Hafliði Breiðfjörð
Fram íhugar að láta reyna á réttarstöðu sína
Lengjudeildin
Framarar vilja fjölga í efstu tveimur deildum og íhugar að láta reyna á réttarstöðu sína.
Framarar vilja fjölga í efstu tveimur deildum og íhugar að láta reyna á réttarstöðu sína.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Framarar eru ósáttir við aðL Leiknir fái sæti í efstu deild.
Framarar eru ósáttir við aðL Leiknir fái sæti í efstu deild.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Frá höfuðsstöðvum KSÍ.
Frá höfuðsstöðvum KSÍ.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fram sendi frá sér yfirlýsingu rétt í þessu þar sem félagið segist íhuga réttarstöðu sína vegna ákvörðunar KSÍ um að ljúka Íslandsmótinu 2020 án þess að klára þær umferðir sem eru eftir.

Heilbrigðisráðherra gaf í gær úr reglugerð þar sem íþróttaiðkun var bönnuð til 17. nóvember næstkomandi vegna heimsfaraldurs Covid-19 veirunnar. Í kjölfarið af því ákvað KSÍ að slaufa Íslandsmótinu og Mjólkurbikarnum.

Fram var í 3. sæti Lengjudeildarinnar þegar tvær umferðir voru eftir af mótinu, með jafnmörg stig og Leiknir sem endaði í 2. sæti og fór þar með upp í Pepsi Max-deildina á markamun.

Framarar eru ósáttir við að Leiknir hljóti sæti í Pepsi Max-deildinni þar sem liðin voru jöfn að stigum þegar flautað var af. Félagið segist vilja láta reyna á að fjölga í tveimur efstu deildum á næsta tímabili vegna þessa en yfirlýsinguna má sjá hér að neðan. Fram er þriðja féagið sem sendir yfrlýsingu í dag. KR sem missti af Evrópusæti í Pepsi Max-deildinni og Magni sem féll úr Lengjudeildinni, gerðu það sama.

Sjá einnig:
KR vísar ákvörðun KSÍ til áfrýjunardómstóls
Magni vonar að ákvörðun KSÍ verði felld úr gildi

Yfirlýsing

Knattspyrnudeild Fram harmar ákvörðun stjórnar KSÍ um að ljúka deildarkeppni í Lengjudeildinni áður en keppnistímabilinu er lokið.

Knattspyrnudeild Fram gerir athugasemd við að stjórn KSÍ hafi heimild til að ákveða að Leiknir Reykjavík skuli hljóta sæti í úrvaldsdeild á næsta tímabili. Í reglugerð sem stjórn KSÍ byggir á segir að við ákvörðun um endanlega niðurröðun ráði: „meðalfjöldi stiga hvers liðs fyrir sig í hverjum leik sem það hefur lokið á þeim degi þegar móti er aflýst“.

Fram og Leiknir voru með sama meðalfjölda stiga er mótinu var aflýst. Samkvæmt skýru orðalagi reglugerðarinnar eru félögin því jafnstæð og sama má segja um þrjú neðstu lið deildarinnar. Ákvörðun stjórnar KSÍ er því markleysa enda í andstöðu við reglugerð KSÍ. Jafnframt er gerður fyrirvari um heimild stjórnar KSÍ um setningu reglugerðarinnar í júlí 2020.

Þegar uppi eru sérstakar aðstæður sem þessar verður að taka tillit til þeirrar stöðu sem uppi er og leysa mál á sem sanngjarnastan og eðlilegastan hátt. Það mætti t.d. láta reyna á að fjölga liðum í efstu deild og næst efstu deild á næsta keppnistímabili vegna þeirra aðstæðna sem eru uppi.

Knattspyrnudeild Fram íhugar að láta reyna á réttarstöðu sína fyrir viðkomandi úrlausnaraðilum.

Stjórn Knattspyrnudeildar Fram
Athugasemdir
banner
banner
banner