31.10.24 - 19:26
Brynjar Ingi Erluson
Ítalía: Fiorentina upp í fjórða sætið

Robin Gosens gerði sigurmark Fiorentina

Mynd: Getty Images

Robin Gosens gerði sigurmark Fiorentina

Mynd: Getty Images
Genoa 0 - 1 Fiorentina
0-1 Robin Gosens ('72 )
0-1 Robin Gosens ('72 )
Fiorentina vann nauman 1-0 sigur á Genoa í Alberts-slagnum í Seríu A á Ítalíu í kvöld.
Eins og flestum er kunnugt kom landsliðsmaðurinn Albert Guðmundsson til Fiorentina á láni frá Genoa í sumar, en Fiorentina er skylt að kaupa Albert í lok tímabils fyrir 17 milljónir evra, það er að segja ef ákveðnum skilyrðum er mætt.
Albert er að glíma við meiðsli og gat því ekki tekið þátt í leiknum, en liðsfélagar hans gerðu ágætlega án hans.
Dauðafærin voru ekki mörg í leiknum en fyrsta og eina mark leiksins gerði Robin Gosens þegar tuttugu mínútur voru eftir. Boltinn datt fyrir hann í teignum eftir fyrirgjöf frá hægri og náði hann að teygja sig í boltann og koma honum í vinstra hornið.
Tveimur mínútum síðar átti David De Gea góða markvörslu frá Andrea Pinamonti hinum megin á vellinum og síðan aftur á 81. mínútu.
Genoa fann ekki leið fram hjá De Gea í kvöld og urðu lokatölur 1-0, Fiorentina í vil. Fiorentina fer í 4. sætið með 19 stig en Genoa er í neðsta sæti með 6 stig.