fös 08.ágú 2014
[email protected]
Ármann Smári: Höldum áfram okkar vegferð
 |
Ármann Smári Björnsson |
ÍA sigraði Þrótt í dag í 1. deildinni með þremur mörkum gegn einu og styrkti þar með stöðu sína í öðru sæti deildarinnar.
Ármann Smári Björnsson, leikmaður liðsins, var skiljanlega sáttur eftir sigurinn. ,,Líðan er mjög góð, við unnum 3-1 sigur og höldum áfram okkar vegferð í þessari deild." ,,Nei, Þróttur er með hörkulið, þetta eru hörkuleikir sem við erum að fara að spila. Það geta allir unnið alla og svona á þetta að vera, gaman að spila fótbolta." Ármann segir að andinn í liðinu sé mjög góður. ,,Andinn er mjög fínn, við erum allir á sömu leið. Það er gaman að vinna og gaman að mæta á æfingar þegar við vinnum."
|