fim 14.mar 2019
[email protected]
Byrjunarlið Arsenal: Síðasti Evrópudeildarleikur Cech?
 |
Þessir þrír byrja. |
Arsenal á erfitt verkefni fyrir höndum í Evrópudeildinni þegar liðið fær franska liði Rennes í heimsókn á Emirates-völlinn í kvöld.
Liðin mættust fyrir viku síðan í Frakklandi og þá hafði Rennes betur, 3-1. Arsenal þarf því að vinna upp tveggja marka forskot í kvöld. Arsenal vann góðan sigur á Manchester United um síðustu helgi í ensku úrvalsdeildinni, 2-0. Unai Emery gerir tvær breytingar frá sigrinum gegn Man Utd. Sokratis er í leikbanni en Mustafi kemur inn í hans stað og Cech er í rammanum eins og alla aðra Evrópudeildarleiki í vetur. Byrjunarlið Arsenal: Cech; Maitland-Niles, Mustafi, Koscielny, Monreal, Kolasinac; Xhaka, Ramsey; Ozil; Aubameyang, Lacazette
(Varamenn: Leno, Torreira, Iwobi, Suarez, Mkhitaryan, Guendouzi, Nketiah) Leikirnir sem að hefjast klukkan 20:00 20:00 Arsenal - Rennes (Stöð 2 Sport 2) (1-3) 20:00 Benfica - Dinamo Zagreb (0-1) 20:00 Inter - Frankfurt (0-0) 20:00 Slavia Prag - Sevilla (Stöð 2 Sport 3) (2-2) 20:00 Villarreal - Zenit (3-1)
|