fim 16.maí 2019
[email protected]
Sævar Péturs: Hvenær kemur VAR í Max?
 |
Sævar Pétursson, framkvæmdastjóri KA. |
„Hvenær kemur VAR í Max? Þetta er aukaspyrna rétt fyrir utan teig...," skrifaði Sævar Pétursson, framkvæmdastjóri KA, á Twitter.
Hann birtir þar skjáskot þar sem sýnt er frá atviki þar sem Ívar Orri Kristjánsson dómari dæmdi aukaspyrnu í tapi KA gegn Breiðabliki í gærkvöldi. Ívar dæmdi Davíð Ingvarsson brotlegan gegn Hrannari Birni Steingrímssyni en taldi að brotið hefði byrjað utan teigs.
KA-menn vildu meina að um vítaspyrnu hefði verið að ræða. Atvikið átti sér stað á 40. mínútu leiksins.
Sjá einnig: Kiddi Jak vongóður um að VAR verði í íslensku deildinni
Sævar er spurður á Twitter hvort aðstoðardómarinn sem var þarna megin á vellinum hefði ekki átt að sjá þetta?
„Jú eða hafa pung í að ræða við dómarann sem hann gerði ekki," svaraði Sævar.
|