mið 26.jún 2019
[email protected]
Ísland í dag - Sæti í undanúrslitum Mjólkurbikarsins í boði
 |
 |
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
|
 |
Mynd: Raggi Óla
|
Það er nóg um að vera í íslenska boltanum í dag. 8-liða úrslitin í Mjólkurbikarnum hefjast og það er leikið í Inkasso-deildinni, bæði karla og kvenna megin. Ásamt því eru nokkrir leikir í neðri deildunum.
ÍBV og Víkingur R. eigast við á Hásteinsvelli og liðið sem að sigrar þann leik verður fyrsta liðið til þess að tryggja sér farseðil í undanúrslitum Mjólkurbikarsins. Það hefur hvorki gengið né rekið hjá Eyjamönnum á leiktíðinni en liðið er aðeins með einn sigurleik í Pepsi Max-deildinni. Blússandi sóknarbolti er farinn að skila Víkingum stigum og liðið hefur ekki tapað leik síðan í lok maí. Fram og Þróttur eigast við í Inkasso-deild karla á Framvellinum. Fjórum stigum munar á liðunum fyrir leikinn. Fram með fjórtán stig á meðan Þróttur er með tíu. Það er sannkallaður botnslagur í Inkasso-deild kvenna þegar ÍR tekur á móti Fjölni í Breiðholtinu. ÍR án stiga fyrir leikinn á meðan Fjölnir er með tvö stig. Ansi dýrmæt stig í boði. Á sama tíma mætast Augnablik og Afturelding. Í þriðju deildinni mætast Augnablik og Reynir S. á gervigrasinu í Fagralundi. Það er toppslagur á dagskrá í 4. deild þegar Ægir og Elliði mætast í Þorlákshöfn. Bæði lið taplaus með þrettán stig eftir fimm leiki.
Hér að neðan má sjá leiki dagsins í íslenska boltanum
Inkasso deildin - 1. deild karla 19:15 Fram-Þróttur R. (Framvöllur) 3. deild karla 20:00 Augnablik-Reynir S. (Fagrilundur - gervigras) Inkasso deild kvenna 19:15 ÍR-Fjölnir (Hertz völlurinn) 19:15 Augnablik-Afturelding (Kópavogsvöllur) Mjólkurbikar karla 18:00 ÍBV-Víkingur R. (Hásteinsvöllur) 4. deild karla - B-riðill - 4. deild karla 20:00 KB-Afríka (Leiknisvöllur) 20:00 KM-ÍH (KR-völlur) 20:00 Snæfell-Hvíti riddarinn (Stykkishólmsvöllur) 4. deild karla - D-riðill - 4. deild karla 20:00 Ægir-Elliði (Þorlákshafnarvöllur)
|