mið 01.júl 2020
[email protected]
Ítalía: Spal stöðvaði Milan - Sampdoria vann
 |
Spal heldur enn í vonina um að bjarga sér frá falli. |
 |
Gaston Ramirez skoraði bæði mörk Sampdoria í dag. |
Mynd: Getty Images
|
 |
Defrel setti tvö gegn Fiorentina. |
Mynd: Getty Images
|
AC Milan gat jafnað Napoli í Evrópusæti með sigri gegn Spal í dag en þau áform fóru um þúfur strax í fyrri hálfleik.
Mattia Valoti og Sergio Floccari komu Spal í tveggja marka forystu í fyrri hálfleik en Marco D'Alessandro fékk rautt spjald skömmu fyrir leikhlé.
Tíu leikmenn Spal héldu út í rúman hálftíma en svo tókst Rafael Leao að minnka muninn.
Milan jók sóknarþungann og skilaði það sér með sjálfsmarki á lokamínútunum. Markið var afar klaufalegt þar sem Francesco Vicari tæklaði boltann í eigið net í tilraun sinni til að fara fyrir sendingu, þrátt fyrir að vera ekki með neinn andstæðing nálægt sér.
Spal er áfram í fallsæti, sjö stigum frá öruggu sæti. Milan er aðeins tveimur stigum frá Evrópusæti.
Spal 2 - 2 Milan 1-0 Mattia Valoti ('13 )
2-0 Sergio Floccari ('30 )
2-1 Rafael Leao ('79 )
2-2 Francesco Vicari ('94 , sjálfsmark)
Rautt spjald: Marco DAlessandro, Spal ('43)
Verona hafði þá betur í fjörugum leik gegn Parma. Bæði lið eru í efri hluta deildarinnar, nokkrum stigum frá Milan.
Lecce og Sampdoria mættust í fallbaráttunni og voru þrjú mörk skoruð í leiknum - öll úr vítaspyrnum.
Gaston Ramirez tók báðar spyrnur Sampdoria sem er fjórum stigum fyrir ofan Lecce eftir sigurinn. Lecce er í fallsæti.
Að lokum hafði Sassuolo betur gegn Fiorentina þar sem Gregoire Defrel skoraði fyrstu tvö mörk leiksins. Verona 3 - 2 Parma 0-1 Dejan Kulusevski ('14 )
1-1 Samuel Di Carmine ('45 , víti)
2-1 Mattia Zaccagni ('54 )
2-2 Riccardo Gagliolo ('64 )
3-2 Matteo Pessina ('81 )
Lecce 1 - 2 Sampdoria 0-1 Gaston Ramirez ('40 , víti)
1-1 Marco Mancosu ('50 , víti)
1-2 Gaston Ramirez ('75 , víti)
Fiorentina 1 - 3 Sassuolo 0-1 Gregoire Defrel ('24 , víti)
0-2 Gregoire Defrel ('35 )
0-3 Mert Muldur ('61 )
1-3 Patrick Cutrone ('90 )
|