fös 03.júl 2020
[email protected]
Gary Martin: Jesús Kristur hann hitti myndavélina nokkrum sinnum
 |
Gary skoraði bæði mörk ÍBV í dag. |
„Þetta var erfitt. Ef markið sem var dæmt af hefði staðið hefði þetta verið rúst," sagði Gary Martin, markaskorari leiksins, í viðtali í kvöld.
Vindur var á annað markið í kvöld og skoraði ÍBV bæði mörkin í seinni hálfleik þegar vindurinn var á mark ÍBV.
„Það hentar mér betur að spila á móti vindi því þá er hægt að setja boltann inn fyrir vörnina. Þetta er flottur sigur gegn góðu liði sem mun vera ofarlega í sumar." Gary var spurður hvort hann myndi hjápa yngri strákunum í ÍBV að klára færin sín.
„Nökkvi og Guðjón klikkuðu á góðum færum. Ég þarf líka að kenna Dóra að taka útspark. Jesús Kristur hann hitti myndavélina nokkrum sinnum," sagði Gary.
Nánar er rætt við Gary í spilaranum hér að ofan.
|