lau 01.ágú 2020
[email protected]
Ítalía í dag - Markahæstu liðin mætast í úrslitaleik
Fimm leikir fara fram í lokaumferð ítölsku deildarinnar í dag og kvöld. Þrír stórleikir eru á dagskrá og verða tveir þeirra sýndir í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport og Sport 3.
Dagurinn hefst á viðureign Brescia og Sampdoria á Stöð 2 Sport 3. Birkir Bjarnason lék þrettán deildarleiki fyrir Brescia frá komu sinni í janúar en hefur verið utan hóps síðustu tvo leiki.
Í kvöld mætast Atalanta og Inter í úrslitaleik um annað sæti. Geri liðin jafntefli getur Lazio stolið öðru sætinu með sigri í stórleik gegn Napoli. Inter er í öðru sæti sem stendur, einu stigi fyrir ofan Lazio og Atalanta. Inter og Atalanta eru þau lið sem hafa skorað flest mörk á deildartímabilinu. Atalanta er komið með 98 mörk og Inter með 79.
Ítalíumeistarar Juventus taka á móti Roma á sama tíma og þá á Milan leik við Cagliari.
Leikir dagsins: 16:00 Brescia - Sampdoria (Stöð 2 Sport 3) 18:45 Juventus - Roma (Stöð 2 Sport) 18:45 Atalanta - Inter (Stöð 2 Sport 3) 18:45 Napoli - Lazio
18:45 AC Milan - Cagliari
|