mið 13.jan 2021
[email protected]
Spánn í dag - Undanúrslit í Ofurbikarnum
 |
Barcelona mætir Real Sociedad. |
Í kvöld mætast Real Sociedad og Barcelona í undanúrslitum spænska Ofurbikarsins.
Það eru fjögur lið sem taka þátt í þessari keppni en á morgun mætast Real Madrid og Athletic Bilbao í hinni undanúrslitaviðureigninni.
Það hefur ekki gengið sérlega vel hjá Sociedad að undanförnu og er liðið í fimmta sæti spænsku úrvalsdeildarinnar, La Liga. Barcelona hefur verið á ágætis skriði og er þessa stundina í þriðja sæti. Flautað verður til leiks í kvöld klukkan 20:00 en leikið er á hlutlausum velli í Cordóba.
miðvikudagur 13. janúar SPAIN: Supercup 20:00 Real Sociedad - Barcelona
|