fim 21.jan 2021
[email protected]
Fyrsta tapið á Anfield síðan í apríl 2017
Liverpool tapaði óvænt heimaleik gegn Burnley í kvöld og var þetta fyrsta tap liðsins á heimavelli í ensku úrvalsdeildinni síðan í apríl 2017.
Liverpool hafði farið taplaust í gegnum 68 heimaleiki í deildinni þar til Ashley Barnes og hinir lærisveinar Sean Dyche mættu á Anfield.
Staðan er ekki sérlega góð hjá Liverpool þessa stundina en liðið er aðeins búið að ná í þrjú stig úr síðustu fimm úrvalsdeildarleikjum sínum. Liverpool hefur ekki tekist að skora mark í síðustu fjórum deildarleikjum sínum en þar áður gerði liðið 1-1 jafntefli við West Brom og vann 0-7 sigur á útivelli gegn Crystal Palace.
Þá skoraði Liverpool fjögur mörk gegn unglingaliði Aston Villa í FA-bikarnum á milli úrvalsdeildarleikja.
Liverpool er í fjórða sæti úrvalsdeildarinnar, sex stigum eftir toppliði Manchester United.
|