lau 05.jún 2021
[email protected]
Bestur í 3. deild: Skorar tvö mikilvæg mörk og siglir þessu heim
 |
Bræðurnir Bjartur og Heiðar. |
Bjartur Aðalbjörnsson, leikmaður Einherja, er leikmaður fjórðu umferðar í 3. deild karla. Hann átti stórleik þegar Einherji vann frábæran 5-2 sigur á Elliða.
Þetta var tilkynnt í hlaðvarpsþættinum Ástríðunni fyrr í vikunni.
„Einherji sækir sinn fyrsta sigur, hann skorar tvö fáránlega mikilvæg mörk og siglir þessu heim," sagði Sverrir Mar Smárason. „Í umferð þar sem lítið um tilþrif. Veðrið hafði mikil áhrif á hvernig leikirnir þróuðust. Þar eru menn sem stíga upp, eins og Bjartur gerði. Hann skorar tvö mikilvæg mörk... hann er bara mættur og klárar. Hann á þetta fyllilega skilið og vel að þessu kominn," sagði Gylfi Tryggvason.
Einherji er með þrjú stig eftir fjóra leiki en á leik við Augnablik í dag.
3. deild karla 13:00 Höttur/Huginn-KFG (Fellavöllur) 14:00 Augnablik-Einherji (Fífan) 14:00 Elliði-KFS (Würth völlurinn) 14:00 ÍH-Sindri (Skessan)
|