fös 05.nóv 2021
[email protected]
Davíð Atla spáir í 11. umferð ensku úrvalsdeildarinnar
 |
Davíð Örn Atlason |
 |
Livramento með stollu? |
Mynd: EPA
|
 |
Nýr sex ára samningur? |
Mynd: EPA
|
 |
Andri er stuðningsmaður Brighton. |
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
|
 |
Hrekkur Kane í gang? |
Mynd: Getty Images
|
Ellefta umferð ensku úrvalsdeildarinnar hefst á föstudagskvöld þegar Southampton tekur á móti Aston Villa á St. Mary's.
Umferðinni lýkur svo á sunnudag með viðureign West Ham og Liverpool.
Davíð Örn Atlason, leikmaður Breiðabliks og þjálfari Rave Cave Dave í Fantasy Premier League, er spámaður umferðarinnar. Davíð er seigur Fantasy-spilari og kemur inn á nokkra mola í spá sinni. Lesendur geta nálgast nýjustu þættina af Enska boltanum og Fantabrögðum hér neðst í fréttinni.
Davíð Snær Jóhannsson var spámaður síðustu umferðar og var með fimm leiki rétta.
Svona spáir Davíð leikjum umferðarinnar:
Southampton 1-0 Aston Villa Fyrir tímabilið spáði ég Southampton falli. Byggði það aðallega á brotthvarfi Ings og Vestegaard en þeir eru einhvernveginn ólseigir og vinna þennan leik 1-0 með marki frá Che Adams. Livramento með stoðsendingu. Gæti verið síðasti leikur Dean Smith með Aston Villa.
Manchester United 1-1 Manchester City Spái óvæntu jafntefli í grannaslagnum. Ole Gunnar tolleraður og verðlaunaður með nýjum sex ára samningi eftir leik. Gæti alveg séð 0-0, 1-0 eða 0-5 samt. Þrítryggi þennan.
Brentford 2-0 Norwich Ætli ég fari ekki út á róló klukkan 15 á laugardaginn. Ivan Toney hefur ekki skorað síðan í fimmtu umferð en hlýtur að skora núna. Er að spá í að kaupa hann í Fantasy, veit samt ekki hvort ég láti verða að því. Norwich getur ekkert.
Chelsea 2-0 Burnley Óþægilega mikill meistarafnykur af þessu Chelsea liði. Halda pottþétt hreinu í þessum leik en skora sennilega ekki 7 eins og í síðasta heimaleik. Havertz og Reece James skora mörkin.
Crystal Palace 0-1 Wolves Patrick Vieira og félagar eru ennþá í skýjunum eftir sigurinn á Etihad síðustu helgi. Raúl Jimenez er kominn í gang og skorar. Ef hann skorar ekki, þá verður það Hwang. Brighton 2-0 Newcastle Ég ætla að spá Brighton sigri í þessum leik en það er bara fyrir harðasta og líklega eina Brighton mann landsins, Andra Rafn Yeoman. Er með bæði Sánchez og Duffy í Fantasy liðinu mínu þannig hreint lak frá þeim gerir mikið fyrir mig. Setjum eitt mark á Duffy og Cucurella skorar líka.
Arsenal 2-1 Watford Helvítis skrið á Arsenal. Watford stöðvar þá ekki þessa helgina. Karl faðir minn verður kátur og ég mæti fýldur í sunnudagsmatinn þar sem Arsenal verður ofar í töflunni en mínir menn í United.
Everton 0-3 Tottenham Sá megnið af leiknum hjá Everton gegn Wolves á mánudaginn. Þeir voru ekkert eðlilega lélegir. Verður áhugavert að sjá hvernig Tottenham kemur til leiks og hvort Conte nái að kveikja á Kane í framhaldinu. Þeir rúlla allavega yfir Everton. Kane skorar 0-3 mörk.
Leeds 1-2 Leicester Leeds vann Norwich í síðasta leik en hefði ekki unnið neitt annað úrvalsdeildarleið með sömu frammistöðu. Raphinha skorar fyrir þá og tryggir mér nokkur stig í Fantasy í leiðinni og Vardy skorar allavega eitt fyrir Leicester.
West Ham 1-3 Liverpool West Ham heldur ekki oft hreinu þannig það má búast við markaleik. Er að gera það upp við sjálfan mig hvort ég eigi að selja Antonio í Fantasy. Hjartað segir já en hausinn segir nei. Aðeins eitt mark í síðustu 4 leikjum og 2 í síðustu 7 umferðum. Það skiptir samt engu máli í stóra samhenginu því Liverpool vinnur þetta nokkuð örugglega.
Fyrri spámenn: Davíð Snær - 5 réttir Benni Gumm - 5 réttir Mist Edvards - 5 réttir Karitas - 5 réttir Jeppkall - 4 réttir Albert Brynjar - 4 réttir DigiticalCuz - 4 réttir Sammi - 4 réttir Elías Már - 3 réttir Orri Steinn - 3 réttir
|