þri 30.nóv 2021
[email protected]
Hemmi hefur áhuga á að starfa áfram í kringum U21 liðið
 |
Hermann og fjölskylda. |
Það vakti athygli fyrr í þessum mánuði að Hermann Hreiðarsson fór ekki með í U21 árs landsliðsverkefnið en hann er aðstoðarþjálfari liðsins. Davíð Snorri Jónasson var með Ólaf Kristjánsson til aðstoðar í verkefninu.
Sjá einnig: Óli Kristjáns með U21 í fjarveru Hemma
Fótbolti.net ræddi við Hermann í dag og spurði hann út í hvers vegna hann fór ekki með í verkefnið en Ísland lék gegn Liechtenstein og Grikklandi í síðasta verkefni.
„Það var mjög einföld ástæða fyrir því. Ég tók við sem þjálfari ÍBV í haust og var einn þjálfari liðsins. Það átti ennþá eftir að ganga frá ýmsum hlutum í kringum það, flutningar til Eyja og annað. Ég vildi, og það þurfti að, skipuleggja hluti í kringum liðið. Við Davíð ræddum það okkar á milli og það var allt á góðum nótum," sagði Hemmi.
Hafiði rætt saman um næstu verkefni?
„Já, við höfum gert það en það hefur svo sem ekkert verið ákveðið." Hemmi segist vilja vera áfram í kringum liðið en hann þurfi þó að skipuleggja sig vel ef hann á að vera í burtu frá ÍBV í lengri tíma í landsleikjahléum.
|