fös 14.jan 2022
[email protected]
Þýskaland um helgina - Meistararnir mæta heitu liði Kölnar
 |
Bayern München mætir Köln |
Nítjánda umferð þýsku deildarinnar fer fram um helgina en Bayern München spilar við Köln á meðan Alfreð Finnbogason gæti verið í hóp hjá Augsburg gegn Eintracht Frankfurt.
Borussia Dortmund og Freiburg eigast við í kvöld klukkan 19:30 en Dortmund er aðeins sex stigum á eftir toppliði Bayern.
Sex leikir eru á morgun. Bayern fær verðugt verkefni gegn Köln sem hefur unnið síðustu þrjá leiki sína. RB Leipzig spilar við Stuttgart.
Á sunnudag mætir Augsburg liði Eintracht Frankfurt. Íslenski landsliðsmaðurinn Alfreð Finnbogason er byrjaður að æfa hjá Augsburg og gæti verið í hóp.
Leikir helgarinnar: Föstudagur: 19:30 Dortmund - Freiburg
Laugardagur: 14:30 Wolfsburg - Hertha
14:30 Union Berlin - Hoffenheim
14:30 Stuttgart - RB Leipzig
14:30 Mainz - Bochum
14:30 Köln - Bayern
17:30 Gladbach - Leverkusen
Sunnudagur: 14:30 Augsburg - Eintracht Frankfurt
16:30 Arminia Bielefeld - Greuther Furth
|