lau 22.jan 2022
[email protected]
Þýskaland: Dortmund stal stigunum - Augsburg steinlá
 |
 |
Mynd: Getty Images
|
 |
Mynd: EPA
|
Erling Braut Haaland kom Borussia Dortmund yfir í hörkuleik á útivelli gegn Hoffenheim í þýska boltanum í dag.
Haaland skoraði snemma leiks en heimamenn tóku stjórn á leiknum og voru betri stærstan hluta fyrri hálfleiks. Andrej Kramaric jafnaði skömmu fyrir leikhlé með sínu hundraðasta marki fyrir Hoffenheim.
Leikurinn var aðeins jafnari í síðari hálfleik en Hoffenheim virtist vera með yfirhöndina. Gestirnir frá Dortmund nýttu færin sín hins vegar betur og komust í tveggja marka forystu eftir mark frá Marco Reus og sjálfsmark skömmu síðar.
Georginio Rutter minnkaði muninn á 77. mínútu en nær komust heimamenn ekki og sárt tap staðreynd. Þetta var þriðji sigur Dortmund í röð og er liðið þremur stigum eftir toppliði FC Bayern sem á leik til góða gegn Hertha Berlin á morgun. Hoffenheim er í Meistaradeildarbaráttu og var þetta annar tapleikurinn í röð.
Hoffenheim 2 - 3 Borussia Dortmund 0-1 Erling Haaland ('6 )
1-1 Andrej Kramaric ('45 )
1-2 Marco Reus ('58 )
1-3 David Raum ('66 , sjálfsmark)
2-3 Georginio Rutter ('77 )
Alfreð Finnbogason var ónotaður varamaður er Augsburg fékk rassskellingu í Leverkusen. Moussa Diaby skoraði þrennu í þægilegum 5-1 sigri sem kom Leverkusen í þriðja sæti deildarinnar.
Union Berlin er óvænt í fjórða sæti eftir góðan sigur á útivelli gegn Borussia Mönchengladbach. Max Kruse var hetja gestanna með bæði mörkin.
Freiburg kemur svo í fimmta sæti eftir góðan sigur á fallbaráttuliði Stuttgart. Botnlið Greuther Fürth vann þá sinn annan leik á tímabilinu, 2-1 gegn Mainz.
Bayer Leverkusen 5 - 1 Augsburg 1-0 Karim Bellarabi ('9 )
2-0 Moussa Diaby ('24 )
2-1 Arne Maier ('62 )
3-1 Moussa Diaby ('65 )
4-1 Moussa Diaby ('69 )
5-1 Lucas Alario ('81 )
Borussia M'Gladbach 1 - 2 Union Berlin 0-1 Max Kruse ('18 , víti)
1-1 Kouadio Kone ('40 )
1-2 Max Kruse ('84 )
Freiburg 2 - 0 Stuttgart 1-0 Hiroki Ito ('37 , sjálfsmark)
2-0 Kevin Schade ('71 )
Greuther Furth 2 - 1 Mainz 1-0 Jeremy Dudziak ('12 )
2-0 Stefan Bell ('66 , sjálfsmark)
2-1 Karim Onisiwo ('90 )
|