fös 20.maí 2022
[email protected]
Rangnick: Gæti tekið þrjá glugga en ég er bjartsýnn á að Man Utd snúi aftur á toppinn
 |
Ralf Rangnick stýrir United í síðasta sinn á sunnudag. |
Ralf Rangnick stýrir Manchester United í síðasta sinn þegar liðið heimsækir Crystal Palace á sunnudag. United er í sjötta sæti (Evrópudeildarsæti) en gæti fallið niður í það sjöunda (Sambandsdeildarsæti).
Á fundinum í dag sagðist Rangnick trúa því að það væru enn margir í liði United sem eru með gæðin til að spila fyrir Manchester United en segir nauðsynlegt að félagið fái þolinmæði til að styrkja liðið.
„Ég hef fulla trú á því að hér séu leikmenn sem eru nægilega góðir fyrir félagið. Þeir þurfa að vera með okkur næsta tímabil. Ef við fáum inn réttu mennina er ég bjartsýnn á að við náum að koma United aftur á toppinn," segir Rangnick.
„Það er kannski ekki mögulegt í einum félagaskiptaglugga en í næstu tveimur til þremur ætti það að vera hægt." Rangnick fer í ráðgjafahlutverk þegar Erik ten Hag tekur við stjórnartaumunum. Rangnick segist hlakka til að hitta Ten Hag.
„Við höfum verið í sambandi gegnum WhatsApp. Vonandi fæ ég tækifæri til að hitta hann og spjalla við hann undir fjögur augu um helgina, eða í síðasta lagi á mánudag. Ég hlakka til að hitta hann og kynnast honum," segir Rangnick.
|