fös 20.maí 2022
[email protected]
Lengjudeildin: Svakaleg dramatík á Akureyri - Kórdrengir unnu KV
 |
Þórir gerði tvö. |
 |
Dagur Ingi Hammer Gunnarsson. |
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
|
Þór bjargaði stigi á dramatískan hátt í kvöld er liðið spilaði við Grindavík í þriðju umferð sumarsins.
Þórsarar höfðu unnið einn og tapað einum fyrir leikinn á meðan Grindvíkingar voru taplausir með fjögur stig.
Heimalið kvöldsins hafði unnið Kórdrengi 1-0 í fyrstu umferð en fékk skell gegn Fjölnismönnum þann 13. maí og tapaði 4-1.
Grindavík gerði þá jafntefli við Aftureldingu í fyrstu umferð en vann Þrótt Vogum sannfærandi í kjölfarið.
Dagur Ingi Hammer Gunnarsson kom Grindvíkingum yfir í kvöld með marki sem leit lengi út fyrir að ætla að duga gestaliðinu.
Í blálokin jöfnuðu Þórsarar er Jewook Woo kom boltanum í netið en þá voru komnar 94 mínútur á klukkuna.
Mikill hiti færðist í leikinn eftir þetta mark og fékk Thiago Dylan Ceijas að líta beint rautt spjald sem og þjálfari Grindavíkur, Alfreð Elías Jóhannsson. Kórdrengir unnu verðskuldaðan sigur á KV á sama tíma en liðið hafði betur 2-0 með mörkum frá Þóri Rafn Þórissyni.
Þórir gerði bæði mörk Kórdrengja sem fengu einnig vítaspyrnu snemma leiks sem Ingólfur Sigurðsson brenndi af.
Afturelding fékk þá sitt annað stig í deildinni og varð um leið fyrsta liðið til að taka stig af Selfyssingum.
Þessum leik lauk með 1-1 jafntefli þar sem Ýmir Halldórsson jafnaði metin fyrir Aftureldingu þegar tvær mínútur voru eftir.
Selfoss var með fullt hús stiga fyrir leikinn en er nú með sjö stig í þriðjka sætinu og er taplaust ásamt Fylki og Grindavík.
Þór 1 - 1 Grindavík 0-1 Dagur Ingi Hammer Gunnarsson ('27 ) 1-1 Jewook Woo ('94 ) Rautt spjald: ,Thiago Dylan Ceijas, Grindavík ('97)Alfreð Elías Jóhannsson, Grindavík ('98)
Lestu um leikinn
Kórdrengir 2 - 0 KV 1-0 Þórir Rafn Þórisson ('14 ) 1-0 Ingólfur Sigurðsson ('16 , misnotað víti) 2-0 Þórir Rafn Þórisson ('47 ) Lestu um leikinn
Afturelding 1 - 1 Selfoss 0-1 Ingvi Rafn Óskarsson ('73 ) 1-1 Ýmir Halldórsson ('88 ) Lestu um leikinn
|