þri 21.jún 2022
[email protected]
Sterkust í 10. umferð - Fer markahæst í fríið
 |
Jasmín Erla Ingadóttir. |
Það er Steypustöðin sem færir þér leikmann umferðarinnar í Bestu deildinni. Jasmín Erla Ingadóttir úr Stjörnunni er leikmaður tíundu umferðar.
Sjá einnig: Sterkasta lið 10. umferðar - Ásdís Karen verið í 50 prósent tilvika Jasmín Erla átti stórkostlegan leik þegar Stjarnan vann 4-0 sigur á ÍBV, liði sem hefur komið á óvart í sumar, á heimavelli.
„Spilaði frábærlega í dag. Var skapandi fremst á miðjunni og gerði tvö góð mörk með um það bil tveggja mínútna millibili í upphafi síðari hálfleiks sem gerði algjörlega út um leikinn," skrifaði Alexandra Bía Sumarliðadóttir í skýrslu sinni frá leiknum.
Það gekk illa hjá Stjörnunni að opna vörn ÍBV í fyrri hálfleiknum en í seinni hálfleiknum tókst þeim að finna margar opnanir og skora þrjú mörk.
„Við vorum bara þolinmóðari. Við vissum þegar við komum út í seinni að þær yrðu áfram þéttar og nýttum okkur bara að fara utan á þær og finna opnanir þegar þær komu," sagði Jasmín eftir leik.
„Ég er bara ógeðslega ánægð með okkur stelpurnar bara í allt sumar. Þannig ég gæti ekki verið glaðari." Það er komið EM-frí og fer Jasmín inn í fríið sem markahæsti leikmaður deildarinnar með sjö mörk.
Sjá einnig: Sterkust í 1. umferð - Ana Paula Santos Silva (Keflavík) Sterkust í 2. umferð - Samantha Leshnak Murphy (Keflavík) Sterkust í 3. umferð - Arna Eiríksdóttir (Þór/KA) Sterkust í 4. umferð - Ásta Eir Árnadóttir (Breiðablik) Sterkust í 5. umferð - Júlíana Sveinsdóttir (ÍBV) Sterkust í 6. umferð - Sandra Sigurðardóttir (Valur) Sterkust í 7. umferða - Birta Georgsdóttir (Breiðablik) Sterkust í 8. umferð - Katla Tryggvadóttir (Þróttur R.) Sterkust í 9. umferð - Samantha Leshnak Murphy (Keflavík)
|