miđ 22.jún 2022
[email protected]
Mane til Bayern München (Stađfest) - Skrifađi undir til 2025
 |
Sadio Mane skrifađi undir til 2025. |
 |
Mynd: EPA
|
Sadio Mane er formlega orđinn leikmađur Bayern München og skrifađi undir samning til 2025. Á heimasíđu Liverpool er sagt ađ hann kveđji félagiđ sem gođsögn.
„Í hans 269 leikjum fyrir félagiđ ţá skilađi Mane 120 mörkum, 38 stođsendingum og óteljandi bros og minningar," stendur í grein Liverpool.
Herbert Hainer, forseti Bayern München, tjáir sig um komu Mane á heimasíđu Ţýskalandsmeistarana:
„Sadio Mane er alheimsstjarna og koma hans undirstrikar ađdráttarafl FC Bayern og mun auka áhuga á ţýsku deildinni í heild sinni. Stuđningsmenn koma á völlinn til ađ sjá svona leikmenn. Ţađ er frábćrt ađ fá hann," segir Hainer.
Mane: Bayern er rétt félag á réttum tímapunkti „Líf mitt hefur alltaf snúist um áskoranir. Ţegar ráđgjafi minn upplýsti mig um áhuga Bayern í fyrsta sinn ţá fylltist ég spennu og eldmóđi," segir Mane sem er 30 ára gamall.
„Ég sá sjálfan mig strax fyrir mér ţar. Í mínum huga er ţetta rétta félagiđ á réttum tímapunkti. Ţetta er eitt stćrsta félag heims og berst alltaf um alla titla sem eru í bođi." „Ég fann góđa tilfinningu ţegar Bayern kynnti áćtlanir sínar fyrir mér. Ég sá mig smellpassa inn í ţessar áćtlanir." Mane er ađ yfirgefa Liverpool sem ţegar hefur fengiđ til sín mann til ađ fylla hans skarđ, úrúgvćska sóknarmanninn Darwin Nunez.
|