lau 01.okt 2022
[email protected]
England í dag - Fjandliðin berjast um Norður-London
 |
 |
Mynd: EPA
|
Enska úrvalsdeildin fer aftur í gang í dag eftir landsleikjahlé og eru gríðarlega skemmtilegir leikir á dagskrá.
Veislan hefst í hádeginu þegar Arsenal tekur á móti Tottenham í bardaganum, eða stríðinu öllu heldur, um Norður-London. Þessi fjandlið stefna bæði á að ná Meistaradeildarsæti á tímabilinu en það er hægara sagt en gert í erfiðustu deild heims. Það fara svo fimm leikir af stað klukkan 14:00 þar sem Liverpool tekur á móti Brighton í spennandi slag. Ítalinn Roberto De Zerbi stýrir Brighton þar í fyrsta sinn á meðan Graham Potter verður við stjórnvölinn hjá Chelsea sem heimsækir Crystal Palace í öðrum Lundúnaslag. Bournemouth og Brentford eigast þá við á meðan Fulham mætir Newcastle og Southampton fær Everton í heimsókn. Að lokum á West Ham síðdegisleik við Wolves. Leikir dagsins: 11:30 Arsenal - Tottenham 14:00 Bournemouth - Brentford 14:00 Liverpool - Brighton 14:00 Southampton - Everton 14:00 Fulham - Newcastle 14:00 Crystal Palace - Chelsea 16:30 West Ham - Wolves
|