lau 01.okt 2022
[email protected]
Lokaumferðin í dag - Hver verður markahæst?
 |
Verður Jasmín Erla markahæst í dag? |
Lokaumferðin í Bestu-deild kvenna fer fram í dag en þegar er ljóst að Valur er Íslandsmeistari og Afturelding og KR eru fallin. Stóra baráttan snýst þó um 2. sætið sem gefur sæti í Meistaradeild Evrópu. Stjarnan er í 2. sæti með 34 stig og mætir Keflavík í dag en Breiðablik er stigi neðar í 3. sætinu og mætir Þrótti í dag. Það er þó ein barátta eftir og hún gæti endað sem innbyrðis barátta leikmanna Stjörnunnar. Það er baráttan um gullskóinn, markahæsti leikmaður deildarinnar. Jasmín Erla Ingadóttir úr Stjörnunni er á toppnum með 10 mörk en á hæla hennar kemur liðsfélagi hennar Gyða Kristín Gunnarsdóttir með 9. Í kjölfarið koma fjórir leikmenn með 8 mörk en listann má sjá að neðan.
Markahæstu leikmenn: 1. Jasmín Erla Ingadóttir Stjarnan - 10 2. Gyða Kristín Gunnarsdóttir Stjarnan - 9 3. Cyera Makenzie Hintzen Valur - 8 4. Danielle Julia Marcano Þróttur R. - 8 5. Sandra María Jessen Þór - 8 6. Brenna Lovera Selfoss - 8 7. Elín Metta Jensen Valur - 7 8. Miranda Nild Selfoss - 6 9. Katrín Ásbjörnsdóttir Stjarnan - 6 10. Margrét Árnadóttir KA - 6 11. Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir Valur - 6 Leikir dagsins: 14:00 KR-Þór/KA (Meistaravellir) 14:00 Stjarnan-Keflavík (Samsungvöllurinn) 14:00 Valur-Selfoss (Origo völlurinn) 14:00 Breiðablik-Þróttur R. (Kópavogsvöllur) 14:00 ÍBV-Afturelding (Hásteinsvöllur)
|