lau 01.okt 2022
[email protected]
Man Utd fékk stig eftir tap - Asllani afgreiddi Samp
 |
 |
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
|
María Þórisdóttir lék allan leikinn í liði Manchester United sem tapaði í fyrstu umferð enska deildabikarsins eftir vítaspyrnukeppni gegn Aston Villa.
Man Utd fær eitt stig þrátt fyrir tapið og fær Villa aðeins tvö stig fyrir sigurinn vegna þess að úrslitin réðust í vítaspyrnukeppni. Everton, Durham og Sheffield United eru einnig í riðli með Villa og Man Utd, sem eru meðal betri liða enska boltans. Nikita Parris tók forystuna fyrir Man Utd snemma leiks en Rachel Daly gerði jöfnunarmark Villa í síðari hálfleik. Aston Villa 1 - 1 Man Utd 0-1 Nikita Parris ('16) 1-1 Rachel Daly ('72) 4-3 í vítaspyrnukeppni Guðný Árnadóttir lék þá allan leikinn er AC Milan sigraði gegn Sampdoria í ítalska boltanum. Kosovare Asllani, sem skein skært á EM í sumar, skoraði bæði mörk Milan í 2-1 sigri. Þetta var þriðji sigur Milan í röð og er liðið þar með búið að jafna Sampdoria í fjórða sæti, með níu stig eftir fimm umferðir. Milan 2 - 1 Sampdoria 0-1 Sara Baldi ('3) 1-1 Kosovare Asllani ('7) 2-1 Kosovare Asllani ('48)
|