lau 01.okt 2022
[email protected]
England: Fyrsti sigur Potter - Everton og Newcastle með útisigra
 |
 |
Mynd: EPA
|
 |
Mynd: Getty Images
|
Það fóru fimm leiki fram á sama tíma á þessum skemmtilega laugardegi í ensku úrvalsdeildinni þar sem Graham Potter sótti sinn fyrsta sigur við stjórnvölinn hjá Chelsea.
Potter sótti sigurinn á erfiðum útivelli Crystal Palace þar sem liðin áttust við í nágrannaslag. Heimamenn í Palace tefldu fram sóknarsinnuðu liði og tóku forystuna snemma þegar Odsonne Edouard kom boltanum í netið. Á 32. mínútu voru heimamenn ekki sáttir þegar Thiago Silva, varnarmaður Chelsea, fékk að hanga inni á vellinum þrátt fyrir að stöðva boltann viljandi með höndunum sem aftasti varnarmaður. Skömmu síðar átti Silva stoðsendingu á Pierre-Emerick Aubameyang sem jafnaði metin. Chelsea var með yfirhöndina í bragðdaufum síðari hálfleik en Conor Gallagher kom inn af bekknum á 76. mínútu og skoraði sigurmarkið undir lokin eftir stoðsendingu frá öðrum varamanni - Christian Pulisic. Crystal Palace 1 - 2 Chelsea 1-0 Odsonne Edouard ('7) 1-1 Pierre-Emerick Aubameyang ('38) 1-2 Conor Gallagher ('90) Everton hafði þá betur gegn Southampton eftir að hafa lent undir þar sem Conor Coady og Dwight McNeil sáu um markaskorunina. Newcastle rúllaði yfir tíu leikmenn Fulham á útivelli sem misstu Nathaniel Chalobah af velli snemma leiks með beint rautt spjald og þá gerðu Bournemouth og Brentford markalaust jafntefli. Everton vann sinn annan leik í röð og er með 10 stig eftir 8 umferðir. Newcastle og Fulham eru með 11 stig. Fulham 1 - 4 Newcastle 0-1 Joseph Willock ('11 ) 0-2 Miguel Almiron ('33 ) 0-3 Sean Longstaff ('43 ) 0-4 Miguel Almiron ('57 ) 1-4 Bobby Reid ('88 ) Rautt spjald: Nathaniel Chalobah, Fulham ('8) Southampton 1 - 2 Everton 1-0 Joe Aribo ('49 ) 1-1 Conor Coady ('52 ) 1-2 Dwight McNeil ('54 ) Bournemouth 0 - 0 Brentford
|