lau 22.okt 2022
[email protected]
Efnilegastur 2022 - Tók skref til baka til að taka heljarstökk áfram
 |
Kristall Máni Ingason. |
Uppgangur Kristals Mána Ingasonar hefur verið frábær og þessi tvítugi leikmaður skemmti áhorfendum Bestu deildarinnar með fótboltahæfileikum sínum áður en hann var seldur út til norska félagsins Rosenborg.
Kristall fæddist á fyrsta mánuði ársins 2002 og Fótbolti.net velur hann sem efnilegasta leikmann Bestu deildarinnar 2022.
„Algjörlega frábær leikmaður og önnur saga af leikmanni sem tekur skrefið til baka til að taka í raun og verju heljarstökk áfram," sagði Tómas Þór Þórðarson í útvarpsþættinum Fótbolti.net þar sem valið var opinberað.
Kristall var í herbúðum FC Kaupmannahafnar áður en hann gekk í raðir Víkings 2020.
Sjá einnig: Sævar Atli Magnússon efnilegastur 2021 Valgeir Lunddal efnilegastur 2020 Finnur Tómas Pálmason efnilegastur 2019 Willum Þór Willumsson efnilegastur 2018 Alex Þór Hauksson efnilegastur 2017 Böðvar Böðvarsson efnilegastur 2016 Oliver Sigurjónsson efnilegastur 2015 Aron Elís Þrándarson efnilegastur 2014 Hólmbert Friðjónsson efnilegastur 2013
|