lau 19.nóv 2022
[email protected]
Patrik Johannesen sagður á leið til Breiðabliks - Kostar 11 milljónir
 |
Patrik er að ganga í raðir Breiðabliks samkvæmt Dr. Football |
Færeyski framherjinn Patrik Johannesen er að ganga í raðir Breiðabliks frá Keflavík fyrir ellefu milljónir íslenskra króna en þetta herma heimildir Dr. Football í dag.
Patrik, sem er 27 ára gamall, kom til Keflavíkur frá norska félaginu Egersund fyrir tímabilið og sló strax í gegn.
Hann skoraði 12 mörk og lagði upp tvö í Bestu deild karla í sumar og var með bestu mönnum mótsins en hann átti risastóran þátt í góðum árangri liðsins í deildinni.
Færeyingurinn er nú að ganga í raðir Breiðabliks frá Keflavík en talið er að Blikar borgi metfé fyrir leikmanninn eða ellefu milljónir íslenskra króna.
Þetta er þriðji leikmaðurinn sem Blikar næla í eftir tímabilið en Eyþór Aron Wöhler kom frá ÍA og þá var Alex Freyr Elísson fenginn frá Fram.
Breiðablik vann Bestu deildina sannfærandi í síðasta mánuði eða með tíu stiga mun.
|