lau 19.nóv 2022
[email protected]
Segir Newcastle starfið það versta á ferlinum
Graeme Souness fyrrum leikmaður og stjóri Liverpool er alls ekki spenntur fyrir því að snúa aftur í stjórastólinn.
Souness er 69 ára en hann vinnur í dag sem sérfræðingur á Sky Sports. Hann stýrði Newcastle síðast frá 2004-2006. Hann lýsir því sem verstu vinnunni á ferlinum. „Ég held að það sé ekkert sem freistar mig til að snúa aftur í stjórastólinn. Ég vil ekki þurfa vera ábyrgur fyrir þessu fólki sem tekur stóru ákvarðanirnar í fótboltanum. Newcastle starfið var versta starfið á ferlinum, alveg skelfilegt," sagði Souness. Souness lék með Liverpool frá 1978–1984 og vann deildina fimm sinnum. Hann stýrði liðinu síðan einu sinni til sigurs í FA bikarnum þegar hann stýrði liðinu frá 1991-1994.
|