sun 20.nóv 2022
[email protected]
Ítalía: Milan, Inter og Fiorentina gerðu jafntefli
 |
 |
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
|
Guðný Árnadóttir lék allan leikinn í varnarlínu AC Milan sem gerði 3-3 jafntefli við Como í efstu deild ítalska boltans í dag.
Milan komst í tveggja marka forystu í tvígang en gestunum frá Como tókst að jafna undir lok uppbótartímans. Milan er með 13 stig eftir 9 umferðir á meðan Como situr í næstneðsta sæti með 6 stig. Alexandra Jóhannsdóttir kom þá inn af bekknum í markalausu jafntefli Fiorentina gegn Inter. Alexandra kom inn á 18. mínútu þegar Sarah Huchet þurfti að fara meidd af velli. Henni tókst þó ekki að skora og horfði Anna Björk Kristjánsdóttir á leikinn af varamannabekk Inter. Fiorentina er í þriðja sæti með 19 stig og Inter er með 18 stig. Milan 3 - 3 Como Fiorentina 0 - 0 Inter
|