sun 04.des 2022
[email protected]
Staðfestir að Neymar sé klár í slaginn
Mikil óvissa hefur verið um þátttöku Neymar á HM en hann meiddist í fyrstu umferð gegn Serbíu og hefur ekkert geta æft.
Hann er hins vegar kominn af stað og mun æfa með liðinu í dag. „Já, hann verður til taks. Hann mun æfa með okkur í dag, ef allt gengur vel mun hann spila," sagði Tite landsliðsþjálfari Brasilíu. Brasilía mætir Suður Kóreu í 16-liða úrslitum á morgun.
|