þri 06.des 2022
[email protected]
Richarlison við Son: Þú ert hetja
Brasilía sló Suður Kóreu úr leik á HM í Katar í gær með öruggum 4-1 sigri.
Richarlison, leikmaður Tottenham hefur staðið sig vel með brasilíska liðinu á HM en hann skoraði þriðja markið í leiknum. Með þessum sigri sendi hann Son Heung-Min, liðsfélaga sinn hjá Tottenham heim. Þeir voru mótherjar í 90 mínútur í gær en þeir föðmuðust og spjölluðu eftir leikinn. Richarlison sendi Son kveðju á Twitter eftir leikinn. „Ég veit hversu mikið þú lagðir á þig til að komast hingað og þess vegna ertu hetja í augum þjóðarinnar þinnar," skrifaði Richarlison.
|