þri 24.jan 2023
[email protected]
Tahnai Annis mætt aftur í Þór/KA (Staðfest) - Verður fyrirliði á HM í sumar
 |
Í leik með Þór/KA sumarið 2013. |
Þór/KA hefur samið við fyrrum leikmann félagsins, Tahnai Annis, út komandi tímabil. Frá þessu er greint á heimasíðu félagsins.
Hún er 33 ára sóknarsinnaður miðjumaður og var hjá Þór/KA á árunum 2012-14. Hún var hluti af Íslandsmeistaraliðinu árið 2012 og á samtals að baki 72 leiki í öllum keppnum með liðinu. Hún skoraði 21 mark í þessum 72 leikjum, var í lykilhlutverki síðast þún spilaði með Þór/KA og valin besti leikmaður liðsins eftir tímabilið 2013.
Tahnai hefur tvöfaldan ríkisborgararétt, fædd í Ohio í Bandaríkjunum og er með bandarískan ríkisborgararétt, en einnig filippseyskan. Hún hefur leikið með landsliði Filippseyja frá 2018, á þar 31 leik að baki og er fyrirliði landsliðsins. Landslið Filippseyja er á meðal þeirra liða sem fara á HM í sumar.
Jóhann Kristinn Gunnarsson, þjálfari Þórs/KA þekkir Tahnai vel því hann var þjálfari liðsins þau ár sem hún var hjá Þór/KA og var sá sem fékk hana til liðs við Þór/KA á sínum tíma.
„Hún er auðvitað gæðaleikmaður, við vitum það frá því að hún var hér 2012-14, en lykilatriði fyrir okkur núna er að fá reynslu inn í hópinn, það er stórt atriði fyrir okkur eins og hópurinn er samsettur. Hún gerir alla leikmenn í kringum sig betri. Okkar ungi og efnilegi hópur hefur mjög gott af því. Þetta á eftir að hjálpa okkar leikmönnum sem fyrir eru mjög mikið. Auðvitað er hún líka frábær leikmaður og það spilar vissulega inn í þessa ákvörðun hjá okkur,“ sagði Jóhann.
|