mið 25.jan 2023
[email protected]
Jon Rahm: Ósanngjarnt að Bale sé svona góður bæði í fótbolta og í golfi
 |
Gareth Bale og Jon Rahm. |
Spænski kylfingurinn Jon Rahm, sigurvegari opna bandaríska, er í þriðja sæti heimslistans í golfi en hann spilaði í gær níu holur með Gareth Bale.
Bale er fyrrum leikmaður Real Madrid, Tottenham og velska landsliðsins. Hann lagði fótboltaskóna á hilluna á dögunum.
Bale mun nú klæðast golfskónum enn meira en hann verður meðal keppenda á AT&T Pebble Beach Pro-Am mótinu sem fram fer í Kaliforníu í næsta mánuði.
Bale, sem er 33 ára, æfir fyrir mótið og spilaði með Rahm í gær.
„Ég sagði við Gareth að hann það væri ósanngjarnt að hann væri bæði svona góður í fótbolta og golfi," sagð Rahm við Marca.
„Það er ótrúlegt að hann tileinki sér fótbolta en sé samt svona góður í golfi. Hann elskar golf og í framtíðinni mun ég vonandi sjá hann oftar í atvinnumannakeppnum." 156 áhugamenn keppa á Pebble Beach mótinu og sami fjöldi atvinnumanna. Meðal frægra einstaklinga utan golfheimsins sem taka þátt eru leikarinn Bill Murray og leikstjórnandinn Aaron Rodgers sem spilar fyrir Green Bay Packers í NFL-deildinni.
|