fös 27.jan 2023
[email protected]
Mynd: Morata svaraði rottusöngvunum
 |
Morata fagnaði opnunarmarkinu í gærkvöldi. |
Spænski sóknarmaðurinn Alvaro Morata er alinn upp hjá Atletico Madrid en skipti yfir til Real Madrid aðeins 15 ára gamall og hóf atvinnumannaferilinn hjá félaginu.
Það fór ekki vel í stuðningsmenn Real þegar Morata ákvað að skipta aftur til Atletico nokkrum árum eftir brottfluttning frá Madríd. Stuðningsmenn Real tala um Morata sem rottu og eru til ýmsir niðrandi stuðningsmannasöngvar sem beinast að sóknarmanninum. Öll þessi neikvæðni virðist ekki hafa sérlega slæm áhrif á Morata enda skoraði hann fyrsta mark leiksins er Atletico heimsótti Real í 8-liða úrslitum spænska Konungsbikarsins í gærkvöldi. Morata fagnaði markinu skemmtilega, eða með því að hylja part af ættarnafni sínu sem er aftan á treyjunni hjá Atletico. Hann setti putta yfir fyrsta stafinn í nafninu og þá varð bara eftir 'orata'. Hann ætlaði líklega að hylja o-ið líka en þá hefði staðið eftir 'rata' sem þýðir rotta á spænsku.
|