fim 02.feb 2023
[email protected]
Spánn: Benzema allt í öllu í sigri Real Madrid
Real Madrid 2 - 0 Valencia 1-0 Marco Asensio ('52 ) 2-0 Vinicius Junior ('55 ) Rautt spjald: Gabriel Paulista, Valencia ('72)
Real Madrid komst aftur á sigurbraut í kvöld í spænsku deildinni eftir markalaust jafntefli gegn Real Sociedad í síðustu umferð. Real fékk Valencia í heimsókn en það var markalaust í hálfleik. Antonio Rudiger hélt þó að hann hefði komið Real yfir í uppbótartíma en markið var að lokum dæmt af þar sem Karim Benzema var dæmdur brotlegur. Hann fékk gult spjald fyrir brotið. Real gerði hins vegar út um leikinn snemma í síðari hálfleik en Benzema lagði upp tvö mörk með þriggja mínútna millibili. Fyrst á Marco Asensio og síðan á Vinicius Junior. Valencia lék manni færri síðustu 20 mínúturnar þar sem Gabriel Paulista fékk að líta rauða spjaldið fyrir að sparka hressilega í Vinicius Jr. Real er í 2. sæti fimm stigum á eftir toppliði Barcelona. Valencia er í 14. sæti aðeins stigi frá fallsæti.
|