lau 04.feb 2023
[email protected]
Lengjubikarinn: Keflavík lagði KA - Stefán með tvö fyrir Blika
 |
Sindri Þór Guðmundsson |
Fyrstu leikjunum í Lengjudeildinni er lokið en Breiðablik fékk Selfoss í heimsókn í Fífuna og Bestudeildarliðin Keflavík og KA mættust.
Í Fífunni voru heimamenn marki yfir í hálfleik en Guðmundur Tyrfingsson fékk vítaspyrnu eftir rúmlega klukkutíma leik. Hann tók spyrnuna sjálfur og jafnaði metin. Blikar svöruðu hins vegar með tveimur mörkum og unnu að lokum 3-1. Patrik Johannesen skoraði eitt mark og Stefán Ingi Sigurðarson kom inn á af bekknum og skoraði tvö. KA var marki yfir gegn Keflavík í hálfleik þar sem Daníel Hafsteinsson stangaði fyrirgjöf frá Þorra Mar Þórissyni í netið. Keflavík komst hins vegar til baka í síðari hálfleik. Sindri Þór Guðmundsson jafnaði metin og Axel Ingi Jóhannesson tryggði Keflavík sigurinn. Breiðablik 3-1 Selfoss Mörk Breiðabliks: Patrik Johannesen og Stefán Ingi x2. Mark Selfoss: Guðmundur Tyrfingsson Keflavík 2-1 KA Mörk Keflavíkur: Sindri Þór og Axel Ingi Mark KA: Daníel Hafsteinsson
|