lau 04.feb 2023
[email protected]
Spánn: Villarreal skellt af botnliðinu
Tveimur fyrstu leikjum dagsins er lokið í spænska boltanum þar sem gríðarlega óvænt úrslit litu dagsins ljós þegar botnlið Elche tók á móti Villarreal, sem er í baráttu um Meistaradeildarsæti.
Elche sýndi flotta frammistöðu og skoraði Pere Milla þrennu í fræknum sigri. Milla kom sínum mönnum í forystu strax á þriðju mínútu en Gerard Moreno jafnaði fyrir gestina. Undir lok fyrri hálfleiks, sem hafði verið jafn, fengu heimamenn dæmda vítaspyrnu og skoraði Milla af vítapunktinum. Hann fullkomnaði svo þrennuna sína í upphafi síðari hálfleiks, þegar var aftur komið að því að stíga á vítapunktinn. Staðan var því orðin 3-1 þegar Milla var tekinn útaf og Villarreal gerði þrefalda skiptingu, sem virkaði engan veginn. Lokatölur urðu 3-1 og er Elche komið með 9 stig eftir 20 umferðir - ellefu stigum frá öruggu sæti í deildinni. Botnliðið komst nálægt því að bæta fjórða markinu við í síðari hálfleik. Villarreal er í fimmta sæti, þremur stigum frá Meistaradeildarsæti, eftir annan tapleikinn í röð. Fyrr í dag gerðu Espanyol og Osasuna 1-1 jafntefli. Það er flott stig fyrir fallbaráttulið Espanyol en svekkjandi fyrir Osasuna sem gat komist uppfyrir Villarreal á stöðutöflunni með sigri í dag. Martin Braithwaite gerði verðskuldað jöfnunarmark Espanyol í síðari hálfleik. Elche 3 - 1 Villarreal 1-0 Pere Milla ('3 ) 1-1 Gerard Moreno ('22 ) 2-1 Pere Milla ('45 , víti) 3-1 Pere Milla ('52 , víti) Espanyol 1 - 1 Osasuna 0-1 Ante Budimir ('45 ) 1-1 Martin Braithwaite ('59 ) Rautt spjald: Pierre-Gabriel, Espanyol ('45) Rautt spjald: Abdessamad Ezzalzouli, Osasuna ('45)
|