sun 05.feb 2023
[email protected]
Spánn í dag - Erfitt fyrir Real og Barca
Real Madrid og Barcelona eiga bæði leiki í spænsku deildinni í dag en fimm stig skilja liðin að í titilbaráttunni.
Real Madrid situr þar í öðru sæti og heimsækir Mallorca sem hefur reynst eitt af spútnik liðum tímabilsins á Spáni eftir að hafa rétt bjargað sér frá falli á síðustu leiktíð. Liðin eigast við í hádegisleiknum og eru afar mikilvæg stig í húfi fyrir bæði lið. Real getur brúað bilið á milli sín og Barca á meðan Mallorca getur blandað sér í baráttuna um Evrópusæti. Girona mætir Valencia í fallbaráttunni áður en Real Sociedad, sem er í þriðja sæti, tekur á móti Real Valladolid en eftir það er komið að stórleik helgarinnar. Barcelona tekur þar á móti Sevilla sem fór illa af stað en virðist vera búið að finna taktinn. Sevilla er komið frá fallsvæðinu og búið að sigra þrjá af síðustu fjórum deildarleikjum sínum. Barca er aftur á móti búið að sigra 13 af síðustu 14 leikjum sínum í öllum keppnum og gera eitt jafntefli. Leikir dagsins: 13:00 Mallorca - Real Madrid 15:15 Girona - Valencia 17:30 Real Sociedad - Valladolid 20:00 Barcelona - Sevilla
|