sun 05.feb 2023
[email protected]
Ítalía í dag - Annar Mílanó slagur á stuttum tíma
 |
 |
Sjaldgæf sjón |
Mynd: EPA
|
Það eru fjórir leikir á dagskrá í efstu deild ítalska boltans í dag og hefst veislan þegar Spezia tekur á móti toppliði Napoli í hádeginu.
Napoli hefur verið á frábæru skriði og er með 13 stiga forystu á toppi deildarinnar. Félagið stefnir á sinn fyrsta Ítalíumeistaratitil í rúm 30 ár og getur komist skrefi nær með sigri á þessum erfiða útivelli hér í dag. Torino og Udinese eigast svo við áður en Fiorentina tekur á móti Bologna en í kvöld er stórleikur á dagskrá, þar sem Inter og AC Milan eigast við í nágrannaslagnum um La Madonnina, styttuna sem trónir á toppi heimsfrægrar dómkirkju í Mílanó. Inter og Milan eru þar að eigast við í annað sinn á stuttum tíma eftir að Inter rúllaði yfir Ítalíumeistarana í Ofurbikarnum 18. janúar. Leikur kvöldsins verður gífurlega spennandi þar sem bæði lið þurfa sigur eftir að hafa dregist afturúr Napoli í titilbaráttunni. Það verður áhugavert að fylgjast með hvort rúmenski markvörðurinn Ciprian Tatarusanu haldi byrjunarliðssætinu sínu eftir skelfilega frammistöðu í undanförnum leikjum. Tatarusanu er til vara fyrir Mike Maignan sem er enn að glíma við meiðsli, en Milan krækti sér í annan varamarkvörð í janúar - hinn kólumbíska Devis Vasquez. Maignan gæti snúið aftur fyrir viðureign Milan gegn Tottenham í útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar 14. febrúar. Leikir dagsins: 11:30 Spezia - Napoli 14:00 Torino - Udinese 17:00 Fiorentina - Bologna 19:45 Inter - Milan
|