sun 19.mar 2023
[email protected]
Byrjunarlið Arsenal og Crystal Palace: Saliba ekki í hóp - Whitworth í markinu
 |
Mikilvægur leikur framundan. |
 |
Mynd: Getty Images
|
Það er einn leikur á dagskrá í ensku úrvalsdeildinni í dag en þá mætast Arsenal og Crystal Palace á Emirates vellinum í London.
Arsenal er á toppnum en með sigri í dag getur liðið farið inn í landsleikjahléið með átta stiga forskot á Manchester City. Crystal Palace hefur enn ekki unnið leik á árinu en liðið er í þrettánda sæti deildarinnar, þremur stigum frá fallsæti.
Patrick Vieira var rekinn frá félaginu fyrir helgi og því mun Paddy McCarthy stýra liðinu í leiknum í dag. Hann er þjálfari U21 árs liðs Crystal Palace. Talið er að Roy Hodgson gæti tekið við liðinu á næstu dögum.
Arsenal féll óvænt úr leik í Evrópudeildinni á fimmtudeginum en þá tapaði liðið í vítaspyrnukeppni gegn Sporting Lissabon.
Mikel Arteta, stjóri Arsenal, setur Rob Holding í byrjunarliðið en þetta er hans fyrsti byrjunarliðsleikur í deildinni síðan í síðustu umferðinni á síðasta tímabili.
William Saliba er ekki klár í slaginn en hann meiddist í leiknum gegn Sporting Lissabon. Ben White er í bakverðinu en Takehiro Tomiyasu og Eddie Nketiah eru meiddir og ekki í hópnum. Þá er Gabriel Jesus á bekknum. Vicente Guaita er ekki klár í slaginn hjá Palace og því verður Joe Whitworth áfram í markinu. Arsenal: Ramsdale; White, Holding, Gabriel, Zinchenko; Partey, Xhaka; Saka, Odegaard, Martinelli; Trossard. (Varamenn: Turner, Tierney, Jesus, Smith Rowe, Kiwior, Jorginho, Vieira, Nelson, Walters.) Crystal Palace: Whitworth; Ward, Andersen, Guehi, Mitchell; Milivojevic, Doucoure, Schlupp; Olise, Edouard, Zaha. (Varamenn: Goodman, Tomkins, Ayew, Eze, Mateta, Clyne, Hughes, Richards, Ahamada.)
|