Eitt helsta umræðuefnið þessa dagana er staða Michael Carrick, stjóra Manchester United, en búist var við því að hann yrði rekinn eftir 0-3 tapið gegn Bournemouth síðasta sunnudag. Hann verður hinsvegar áfram með stjórnartaumana og stýrir United gegn Chelsea í hádegisleiknum. Á fréttamannafundi var Carrick spurður að því hvort hann hafi rætt um sína stöðu við yfirmenn sína?
„Ég þarf ekki að fá tryggingu frá neinum. Ég skil stöðu mína fullkomlega sjálfur. Ég hef skilning á starfinu, ég skil ábyrgðina, ég skil hvað þessu fylgir," svaraði Carrick.
Hann var spurður að því hvort hann væri hissa á að vera enn í starfi? „Nei, ég er hér til að sinna mínu starfi. Ég er hér til að gera það besta fyrir liðið, og ég reyni allt til að gera okkur betri og bæta hlutina. Svo nei, ég er ekki hissa."
Bruno heldur áfram að leiða liðið Bruno Fernandes, fyrirliði Manchester United, mun snúa aftur í byrjunarliðið en hann og Carrick hafa farið yfir málin. Bruno var settur á bekkinn gegn Bournemouth og kom ekkert við sögu eftir að hafa gagnrýnt leikskipulag Michael Carrick í 4-1 tapinu gegn Como í Meistaradeildinni.
„Hann er mikilvægur leikmaður fyrir þennan hóp. Hann hefur verið það og mun verða það áfram. Við þurfum öll að leggja okkar af mörkum til að breyta genginu í rétta átt," segir Carrick en Bruno mun halda fyrirliðabandinu. „Hann hefur leitt liðið af miklum myndarbrag í fjölmörgum leikjum og í mörg ár, og hann mun halda því áfram.“
Löngun til að gera betur Carrick stendur með sínu liði og segist finna fyrir hungri í hópnum. Þá segist hann hlusta á stuðningsmenn liðsins.
„Strákarnir eru hungraðir í árangur. Það svíður að við höfum ekki unnið nógu marga fótboltaleiki. En það ríkir mikill kraftur, vonbrigði og svo sannarlega mikil löngun til að gera betur," segir Carrick um andann í hópnum. „Ég hef sagt það áður; skoðun stuðningsmanna skiptir mig máli. Hvernig andrúmsloftið er á leikvanginum, og að þeir ferðist til að koma og sjá okkur og styðja við okkur. Mér er annt um hvað við gefum þeim og hvað þeir fá að sjá."
Manchester United er í sextánda sæti ensku úrvalsdeildarinnar og er án sigurs í síðustu átta leikjum.
EPA
Michael Carrick discusses Bruno Fernandes' captaincy of Manchester United 💪 https://t.co/ZDjc4Q89gv
laugardagur 31. október 12:30 Chelsea - Man Utd 15:00 Bournemouth - Leeds 15:00 Brentford - Nott. Forest 15:00 Coventry - Sunderland 15:00 Hull City - Ipswich Town 15:00 Man City - Brighton 17:30 Tottenham - Crystal Palace 20:00 Aston Villa - Fulham
Eitt helsta umræðuefnið þessa dagana er staða Michael Carrick, stjóra Manchester United, en búist var við því að hann yrði rekinn eftir 0-3 tapið gegn Bournemouth síðasta sunnudag. Hann verður hinsvegar áfram með stjórnartaumana og stýrir United gegn Chelsea í hádegisleiknum. Á fréttamannafundi var Carrick spurður að því hvort hann hafi rætt um sína stöðu við yfirmenn sína?
„Ég þarf ekki að fá tryggingu frá neinum. Ég skil stöðu mína fullkomlega sjálfur. Ég hef skilning á starfinu, ég skil ábyrgðina, ég skil hvað þessu fylgir," svaraði Carrick.
Hann var spurður að því hvort hann væri hissa á að vera enn í starfi? „Nei, ég er hér til að sinna mínu starfi. Ég er hér til að gera það besta fyrir liðið, og ég reyni allt til að gera okkur betri og bæta hlutina. Svo nei, ég er ekki hissa."
Bruno heldur áfram að leiða liðið
Bruno Fernandes, fyrirliði Manchester United, mun snúa aftur í byrjunarliðið en hann og Carrick hafa farið yfir málin. Bruno var settur á bekkinn gegn Bournemouth og kom ekkert við sögu eftir að hafa gagnrýnt leikskipulag Michael Carrick í 4-1 tapinu gegn Como í Meistaradeildinni.
„Hann er mikilvægur leikmaður fyrir þennan hóp. Hann hefur verið það og mun verða það áfram. Við þurfum öll að leggja okkar af mörkum til að breyta genginu í rétta átt," segir Carrick en Bruno mun halda fyrirliðabandinu. „Hann hefur leitt liðið af miklum myndarbrag í fjölmörgum leikjum og í mörg ár, og hann mun halda því áfram.“
Löngun til að gera betur
Carrick stendur með sínu liði og segist finna fyrir hungri í hópnum. Þá segist hann hlusta á stuðningsmenn liðsins.