B. Johnson
Brennan Johnson (Everton) fær gult spjald.F. Schär
Fabian Schär (Newcastle United) fær gult spjald.J. Ramsey
Jacob Ramsey (Newcastle United) fær annað gula spjaldið fyrir gróft brot.J. Ramsey
Jacob Ramsey (Newcastle United) fær gult spjald fyrir gróft brot.T. George
Tyrique George (Everton) fær gult spjald.T. Barry
Mark! Newcastle United 0, Everton 1. Thierno Barry (Everton) hægri fótar skot af stuttu færi á mitt markið eftir fast leikatriði.Goal confirmed following VAR Review.D. Burn
Dan Burn (Newcastle United) fær gult spjald fyrir gróft brot.02.11.26 - 18:52
Ívan Guðjón Baldursson
Byrjunarlið Newcastle og Everton: Fjórar breytingar
Newcastle United og Everton eigast við í eina leik kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni og eru liðin að mætast í annað sinn á fjórum dögum.
Everton hafði betur er liðin mættust í deildabikarnum í síðustu viku og leita lærlingar Matthias Jaissle hefndar í kvöld.
Jaissle gerir aðeins tvær breytingar á byrjunarliðinu sem tapaði gegn Everton, þar sem nafnarnir Jacob Ramsey og Jacob Murphy eru færðir á bekkinn. Joelinton og Anthony Elanga koma inn í byrjunarliðið. Yoane Wissa byrjar áfram á bekknum.
David Moyes gerir líka tvær breytingar á liði Everton og er Jack Grealish enn í skammarkróknum. Hayden Hackney og Tyler Dibling setjast á bekkinn og koma Jarrad Branthwaite og Harrison Armstrong inn í staðinn.
Það ríkir spenna fyrir þennan slag en eitt stig skilur að á milli liðanna í neðri hluta ensku úrvalsdeildarinnar sem stendur.
Newcastle: Hornicek, Dedic, Schar, Burn, Hall, Nico, Joelinton, Willock, Barnes, Elanga, Osula
Varamenn: Pope, Botman, Bamba, Wissa, Thiaw, Steur, Toure, Ramsey, Murphy
Everton: Pickford, O'Brien, Tarkowski, Branthwaite, Mykolenko, Garner, Armstrong, Dewsbury-Hall, Rohl, George, Barry
Varamenn: Travers, Maitland-Niles, Dibling, Keane, Johnson, Norgaard, Alcaraz, Hackney, Graham
When Alan Shearer did this against Everton 🤯 https://t.co/wzOE9mxTnm
— Newcastle United (@NUFC) October 31, 2026
Back in action. Same opponent. Hopefully, the same result. 💪🔵 https://t.co/h66v1LNwa7
— Everton (@Everton) November 2, 2026
Newcastle fær Everton í heimsókn í síðasta leik níundu umferðar ensku úrvalsdeildarinnar í kvöld.
Liðin mættust í enska deildabikarnum á fimmtudaginn þar sem Everton fór með öruggan 3-1 sigur af hólmi.
Liðin mætast á St. James' Park, heimavelli Newcastle í kvöld en bikarleikurinn fór fram á Hill Dickinson, heimavelli Everton.
Liðin eru á svipuðum stað í töflunni. Newcastle er í 12. sæti með 11 stig en Everton í 14. sæti með 10 stig.




